Stafræna hæfnihjólið er sjálfsmatspróf sem tekur um 12-15 mínútur að þreyta. Þátttakandi svarar spurningum með því að stjörnumerkja eigin getu á 16 mismunandi hæfnisviðum og svara spurningum sem birtast í línulegu ferli. Spurningarnar eru samtals 63.
Hver er þín stafræna hæfni?
Hér getur þú tekið próf sem sýnir hver stafræn hæfni þín er og borið saman við aðra í þinni starfsgrein.
VR býður þér að taka prófið til að veita þér tækifæri til þess að styrkja stöðu þína á vinnumarkaðnum.
VR Stafræna hæfnihjólið
Stafræna hæfnihjólið er sjálfsmatspróf sem tekur um 12-15 mínútur að þreyta. Stuðst er við danska gagnagrunninn hjá Center for digital dannelse við úrlausnir og eru niðurstöður þátttakanda vistaðar þar án persónugreinanlegra gagna. Prófið byggir á módeli um stafræna hæfni sem gefið er út af Evrópusambandinu.
Að sjálfsmatsprófi loknu fær þátttakandi tölvupóst með niðurstöðum sínum sem birtast í geislariti sem sýnir hæfni viðkomandi á 16 mismunandi sviðum. Auk niðurstaðna fær þátttakandi ráðleggingar um á hvaða sviðum hann megi bæta sig og tillögur um hvernig hægt er að gera það.
Meginþættir stafrænnar hæfni skiptast niður í öryggi, upplýsingar, samskipti og framkvæmd.
Hvernig stend ég samanborið við aðra í minni starfsgrein?
Meginmarkmið VR með Stafræna hæfnihjólinu er að gefa félagsfólki kost á að kortleggja eigin stafrænu hæfni með það í huga að veita þeim mögulega sýn inn í þá þætti sem flokkast almennt undir stafræna hæfni.
Með þá vitneskju sér félagsfólk á hvaða sviði það stendur sig vel og á hvaða sviði það mætti bæta sig til þess að standast samanburð miðað við aðra í sömu starfsgrein.