iPhone 15 Pro Max efri hátalari
Áður en hafist er handa
Viðvörun
Lestu Öryggi rafhlöðu og fylgdu leiðbeiningum um vinnuumhverfi og meðhöndlun rafhlöðu áður en hafist er handa.
Fjarlægðu eftirfarandi hlut áður en þú byrjar:
Verkfæri
17 cm viðgerðarbakki
ESD-örugg töng
JCIS-biti
Nítrílhanskar
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Átaksskrúfjárn (grænblár, 0,75 kgf cm)
Varúð
Ekki snerta TrueDepth-myndavélasamstæðuna eða nálæga hluti til að forðast skemmdir á linsunum.
Losun
Settu hulstrið í viðgerðarbakkann þannig að USB-C tengið snúi að hakinu.
Notaðu átaksskrúfjárn og JCIS-bitann til að fjarlægja tvær stjörnuskrúfur úr efri hátalaranum. Settu skrúfurnar til hliðar.
Notaðu ESD-örugga töng til að lyfta efri hátalaranum úr hulstrinu.
Samsetning
Notaðu ESD-örugga töng til að staðsetja efri hátalarann í hulstrinu þannig að hann sé í flútti við brún hulstursins.
Varúð: Gakktu úr skugga um að efri hátalarinn halli ekki.
Notaðu grænbláa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að skrúfa eina nýja stjörnuskrúfu (923-09802) (1) efst í efri hátalarann.
Notaðu grænbláa átaksskrúfjárnið og JCIS-bitann til að skrúfa eina nýja stjörnuskrúfu (923-10046) (2) neðst í efri hátalarann.
Settu eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: