Upphitaður búnaður til að fjarlægja skjá
Athugaðu: Leigður hitabúnaður til að fjarlægja skjá getur verið í öðrum umbúðum en sýnt er. Ef USB-snúra fylgdi búnaðinum skal leggja hana til hliðar. Það er ekki þörf á henni í þessari uppsetningu.
Taktu búnaðinn úr kassanum. Fjarlægðu síðan umbúðafrauðið.
Varúð: Ekki lyfta búnaðinum með því að toga hann upp á hnappinum.
Klipptu og fjarlægðu plastböndin af handfanginu.
Snúðu efsta hnappinum á búnaðinum rangsælis til að lyfta sogskálinni. Fjarlægðu umbúðafrauðið.
Snúðu neyðarstöðvunarhnappinum réttsælis þar til hann smellur og stendur út úr stöðvunarhlífinni.
Stingdu rafmagnssnúrunni í búnaðinn. Það kviknar ekki á búnaðinum fyrr en þú snýrð rofanum á bakhliðinni.
Birt: