Mac Pro (2023) aflrofi með stöðuljósi
Áður en hafist er handa
Fjarlægið eftirfarandi hlut áður en hafist er handa:
Verkfæri
Nemi úr næloni (svartur teinn)
Torx T5-skrúfjárn
Athugið: Aflrofinn með stöðuljósinu er með tvo enda. Aflrofaendanum er haldið á sínum stað með skrúfum og endanum með stöðuljósinu er haldið á sínum stað með lími.
Losun
Setjið húsið á hreinan, sléttan flöt eins og sýnt er.
Teygið ykkur inn í húsið og notið T5-skrúfjárnið til að taka fjórar T5-skrúfur (923-03463) úr aflrofaendanum.
Togið varlega í aflrofaendann til að losa límið á milli endans með stöðuljósinu og hússins.
Samsetning
Látið skrúfugötin á aflrofaendanum flútta við skrúfugötin á húsinu. Notið T5-skrúfjárnið til að skrúfa aftur fjórar T5-skrúfur (923-03463) í aflrofaendann.
Stillið endann með stöðuljósinu af við götin tvö eins og sýnt er. Notið síðan slétta endann á svarta teininum til að halda endanum með stöðuljósinu á sínum stað í 15 sekúndur til að festa hann við húsið.
Mikilvægt: Ef settur er í nýr aflrofi með stöðuljósi skal fjarlægja límfilmuna á stöðuljósinu áður en hann er staðsettur.
Setjið húsið á hreinan, sléttan flöt þannig að efri hluti hússins snúi upp.
Gangið úr skugga um að aflrofinn með stöðuljósinu flútti við efri hluta hússins. Þrýstið síðan á aflrofann til að tryggja að hann smelli.
Setjið eftirfarandi hlut aftur á til að ljúka samsetningu: