Apple Silicon Mac-borðtölvur: Vandamál með inntak/úttak
Úrræðaleit vegna vandamála með USB-C, Thunderbolt og HDMI
Úrræðaleit vegna vandamála með SD-kort
Úrræðaleit vegna vandamála með USB-C, Thunderbolt og HDMI
Greining vandamála
USB-C-tæki þekkist ekki eða tengist ekki við rafmagn þegar því er stungið í samband við USB-C-tengi tölvunnar
Thunderbolt-tæki eða -skjár þekkist ekki þegar því er stungið í samband við USB-C-tengi tölvunnar
HDMI-skjár þekkist ekki eða sýnir ekki mynd þegar hann er tengdur við HDMI-tengi tölvunnar
Prófið að fylgja þessum skrefum áður en haldið er áfram í sértæka úrræðaleit
Gangið úr skugga um að ekki sé farið yfir tiltekinn hámarksfjölda studdra ytri USB-C-tækja, Thunderbolt-tækja eða skjáa fyrir þessa gerð. Skoðið Greina tengin á Mac, Tengja skjá við Mac og eftirfarandi hjálpargreinar til að fá frekari upplýsingar um tengingu ytri skjáa.
Skoðið öll USB-C- og HDMI-tengi og op á hólfaopum tölvunnar í leit að aflögun, skemmdum eða óhreinindum sem gætu hindrað tenginguna.
Ef óhreinindi finnast í þessum tengjum skal hreinsa hvert tengi varlega með litlum mjúkum bursta sem er ekki úr málmi. Gangið úr skugga um að burstinn sé hreinn og þurr. Burstið varlega út ló og óhreinindi. Notið rétt nógu mörg hár á burstanum til að komast inn í tengið. Snúið hárunum til að losa um og ná út óhreinindum. Burstið óhreinindi frá tenginu til að koma í veg fyrir að þau berist í tengið. Þurrkið burt óhreinindi sem hafa losnað með örtrefjaklút.
Varúð: Takið allar snúrur úr sambandi og slökkvið fyrst á tölvunni. Notið ekki úðabrúsa, leysiefni, slípiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð sem gætu valdið skemmdum á yfirborðinu. Ekki skal nota málmhluti til að hreinsa burt óhreinindi eða hindranir þar sem þeir geta valdið skammhlaupi í tenginu og valdið skemmdum. Forðist að raki komist í op og ekki úða vökva beint á tölvuna. Notið ekki þrýstiloft.
Keyrið handvirk próf og greiningarpróf
Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða leita að hugsanlegum orsökum skal keyra þessi greiningar- og handvirku próf til að einangra orsök vandamálsins:
Keyrið Greiningarpakka skoðunarbúnaðs fyrir Mac-tölvu (MRI).
Tengið samhæfa mús eða lyklaborð við hvert USB-C-tengi á tölvunni til að staðfesta grunnvirkni USB-C-tengis.
Gangið úr skugga um að Mac-tölvan þekki báðar áttir tengilsins með því að snúa honum við og tengja aftur.
Tengið ytri Thunderbolt-skjá við tölvuna til að staðfesta virkni Thunderbolt í USB-C-tenginu. Staðfestið hljóðúttak ef ytri skjárinn er með innri hátalara. Gangið úr skugga um að ytri skjárinn sýni rétta mynd og að hátalarar ytri skjásins gefi frá sér skýran hljóm.
Tengið ytri HDMI-skjá við tölvuna til að staðfesta virkni HDMI-tengis. Staðfestið hljóðúttak ef ytri skjárinn er með innri hátalara. Gangið úr skugga um að ytri skjárinn sýni rétta mynd og að hátalarar ytri skjásins gefi frá sér skýran hljóm.
Opnið tölvuna og skoðið hana
Ef vandamálið var ekki leyst eða orsökin einangruð með því að fylgja hjálpargreinum eða keyra greiningarpróf skal skoða viðgerðarhandbókina til að opna og skoða tölvuna. Hluti sem hefur skemmst eða færst til gæti verið að valda einhverju vandamálanna.
Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um hlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.
Skiptið um hlutinn
Ef vandamálið var ekki leyst eða orsökin einangruð með því að fylgja fyrri skrefum skal skipta um eftirfarandi hluti, einn í einu, í þeirri röð sem sýnd er. Eftir að skipt hefur verið um fyrsta hlutinn skal endurtaka skref úrræðaleitarinnar til að ákvarða hvort það að skipta um hlut leysi vandamálið. Ef það leysir ekki vandamálið skal skipta um næsta hlut.
Skiptið um viðkomandi samsett inntaks-/úttaksspjald, Thunderbolt 4-tengi á bakstykki eða fremra USB-C-spjald í gerðum Mac Studio, eftir því hvert vandamálið er. Skiptið um viðkomandi Apple Thunderbolt inntaks-/úttaksspjald, efra inntaks-/úttaksspjald eða fremra inntaks-/úttaksspjald í gerðum Mac Pro, eftir því hver gerðin og vandamálið er. Skiptið um móðurborðið á Mac mini gerðum.
Skiptið um móðurborðið í öllum gerðum.
Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um hlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.
Úrræðaleit vegna vandamála með SD-kort
Greining vandamála
Lesið þessa grein ef einhver af eftirfarandi vandamálum eru til staðar:
Ekki er hægt að setja SD-kort í raufina
Hægt er að setja SD-kort í raufina að hluta til, en ekki alveg
Rauf SD-korts samræmist ekki hólfinu
SD-kort virkar ekki rétt þegar það er sett í
Nota rauf SD- og SDXC-korts á Mac-tölvunni
Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.
Prófið að fylgja þessum skrefum áður en haldið er áfram í sértæka úrræðaleit
Gangið úr skugga um að notuð sé rétt gerð af SD-korti. Skoðið Nota rauf SD- og SDXC-korts á Mac-tölvu til að fá frekari upplýsingar um samhæfi og notkun SD-korts.
Skoðið rauf SD-kortsins og op á topphulstri tölvunnar í leit að aflögun, skemmdum eða óhreinindum sem gætu hindrað tenginguna.
Ef óhreinindi finnast í þessum hólfi skal hreinsa það varlega með litlum mjúkum bursta sem er ekki úr málmi. Gangið úr skugga um að burstinn sé hreinn og þurr. Burstið varlega út ló og óhreinindi. Notið rétt nógu mörg hár á burstanum til að komast inn í opið. Snúið hárunum til að losa um og ná út óhreinindum. Burstið óhreinindi frá opinu til að koma í veg fyrir að þau séu burstuð í opið. Þurrkið burt óhreinindi sem hafa losnað með örtrefjaklút.
Varúð: Takið allar snúrur úr sambandi og slökkvið fyrst á tölvunni. Notið ekki úðabrúsa, leysiefni, slípiefni eða hreinsiefni sem innihalda vetnisperoxíð sem gætu valdið skemmdum á yfirborðinu. Ekki skal nota málmhluti til að hreinsa burt óhreinindi eða hindranir þar sem þeir geta valdið skammhlaupi í tenginu og valdið skemmdum. Forðist að raki komist í op og ekki úða vökva beint á tölvuna. Notið ekki þrýstiloft.
Keyrið handvirk próf og greiningarpróf
Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða leita að hugsanlegum orsökum skal keyra þessi greiningar- og handvirku próf til að einangra orsök vandamálsins:
Keyrið Greiningarpakka skoðunarbúnaðs fyrir Mac-tölvu (MRI).
Stingið forsniðnu SD-korti í tölvuna til að staðfesta grunnvirkni SD-kortaraufar. Gangið úr skugga um að kortið sitji rétt. Fjarlægið kortið og staðfestið að hægt sé að ná því úr án erfiðleika.
Gangið úr skugga um að vélbúnaður SD-kortalesara sé óskemmdur.
Opnið tölvuna og skoðið hana
Ef vandamálið var ekki leyst eða orsökin einangruð með því að fylgja hjálpargreinum eða keyra greiningarpróf skal skoða viðgerðarhandbókina til að opna og skoða tölvuna. Hluti sem hefur skemmst eða færst til gæti verið að valda einhverju vandamálanna.
Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um hlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.
Skiptið um hlutinn
Ef vandamálið var ekki leyst eða einangrað með því að fylgja fyrri skrefum skal skipta um SDXC-kortarauf í gerðum Mac Studio.
Athugið: Í þessum hluta þarf að panta varahluti og verkfæri. Finna má þjónustumöguleika á support.apple.com/repair.